Flugur eru líka fólk

[ Wednesday, December 03, 2003 ]

 
ERTU EKKI AD GRÍNAST

Hahaa er þetta ennþá hérna... Nú jæja fyrst þetta er hérna á annað borð þá er alveg eins gott að nota það. Hef hvorteð er ekkert betra að gera. Mér líður alltaf eins og ég sé einstæður öryrki þegar ég er í prófum, sit bara og heng í tölvunni þegar ég veit að ég á að vera að læra. Fjandinn hirði menntun, lærdóm, skóla og málefnalegar umræður um öryrkja. Kannski er ég bara vond manneskja og á skilið að fara beint til helvítis en mér finnst að það ætti ekki að borga fólki fyrir að geta ekki unnið. Ég sjálfur er mjög latur, mér finnst að ég ætti allavega að fá 30% örorku fyrir það. Þá þyrfti ég ekki að vera betlandi pening fyrir sígarettum frá mömmu og pabba.
Shit maður, djöfull er þægilegt að geta skrifað bara það sem manni finnst og eiga það ekki á hættu að vera hrint fyrir næsta bíl. Fyrst ég er byrjaður að vera hreinskilinn þá ætla ég að halda því áfram.

FJANDINN HIRÐI BANDARÍKIN, LÖGGUR OG GYÐINGA!!!
Fvvúíi, nú líður mér betur. Ég virkilega þurfti að leysa út smá reiði. Ég er alltaf að komast að því hversu undarlegt kvikindi ég er. Mér hefur núna næstum tekist að breyta bæði venjum mínum og persónuleika algjörlega.
Ég hef alltaf verið góður strákur, alltaf aðstoðað alla með bros á vör, fengið samviskubit yfir öllum andskotanum og verið með þá þráhyggju að öllum verður að líka vel við mig. En hvert kom það mér?..... Hvergi. Ég er hættur að vera nice, hættur að reyna að fá fólk til að líka við mig og hættur að gera fólki greiða án þess að fá neitt í staðinn..... og mér líður miklu betur.
Gamli Andri var alltaf troðinn niður og vaðið yfir hann á skítugum skónum, nýji Andri er að vísu stundum troðinn niður EN hann stendur strax upp aftur og leggur á minnið hvernig bíllinn þinn lítur út ef hann skildi sjá hann einhverstaðar á bílastæði þegar það er dimmt er og enginn á ferli.

Andri er endurfæddur

Djöfull er ég farinn út að reykja


Andri [2:03 PM]

[ Tuesday, March 11, 2003 ]

 
Helvítis djöfulsins
Ég þoli ekki þetta land. Hvað er fokking málið með að sýna ekki frá Muai Tai bardaganum á laugardaginn. Ég hef bara eitt að segja við þá sem stöðvuðu það!
Ég vona að börnin ykkar fæðist eins heimsk og þið helvítis þroskahefta fólk.


Andri [2:28 AM]

[ Monday, March 03, 2003 ]

 
I LIVE.... AGAIN!!!
Ég sit hérna niðrí tölvustofu og veit ekkert hvað er að gerast. Ég er það ílla af guði gerður að ég sé ekki stakan staf sem skrifaður er á töfluna eða varpað á sjávarpanum nema ég sitji fremst og ég reyni að sleppa við þannig viðbjóð af bestu getu. Þá verð ég bara á netinu á meðan, þetta er hvort sem er svo auðvelt. Blindað barn sem hefði alist upp hjá eðlum alla sína ævi, færi létt með að fá átta í þessu ljóta fagi.
Andri [12:19 AM]

[ Tuesday, December 03, 2002 ]

 
Jæja
Nú er best að fara að halda eitthvað áfram með þetta af einhverri alvöru. Ég er að drukkna í mínu eigin slefi þessa dagana. Það eru nokkrir dagar í jólapróf og ég þarf að læra eins og þroskaheftur mongólíti. Búinn að vera mikið að spila með félögunum og svo er ég líka eitthvað að dunda mér við lagasmíðar. Það gengur ömurlega.

Annars langar mig í Pez
GEMMÉR PEZ
Andri [2:09 AM]

[ Thursday, October 31, 2002 ]

 
Það er allt að verða vitlaust
Í dag eftir hádegi er ég að fara með bekknum mínum að skoða Keflavíkurflugvöll sem verður örugglega ekkert sérstakt nema við fáum að borða á Wendy´s. Mig hefur alltaf langað að borða þar. Annars finnst mér leiðinlegt að borða þvi það er tímafrekt og subbulegt. Ég vildi að ég gæti bara fengið mér næringu í æð ef ég væri svangur, það myndi vera mikill tímasparnaður. Maður gæti bara plöggað svona nál í handlegginn á sér á leiðinni í skólann og fengið sér morgunmat.
Andri [12:42 AM]

[ Monday, October 28, 2002 ]

 
Ég er á lífi
Ég hata helvítis tölvukerfið hérna í Versó. Maður þarf reglulega að breyta passwordinu sínu og þar sem ég hef lítið sem ekkert skamtímaminni þá steingleymi ég þeim strax. Það er ástæðan fyrir því að ég hef ekkert skrifað hérna. Annars er ég bara hress. Er að fara til frakklands í næstu viku að tapa mér í gleðinni, djöfull verður gaman.
Andri [12:30 AM]

[ Monday, October 07, 2002 ]

 
Aldrei aftur
Ég spilaði quarters með tequila flösku við Óla skegg um helgina. Mun það aldrei gerast aftur. Ég tapaði eftir langa baráttu og tóma flösku. Dó síðan drottni mínum í herberginu hans Gunnars félaga og gestgjafa. Þrátt fyrir þynnku mikla á öllum sunnudeginum var prýðilega gaman og óska ég Óla hinum skeggjaða til hamingju með sigurinn.
Andri [2:04 AM]